Frú Ragnheiður er bíll á vegum Rauða krossins sem ekið er um götur höfuðborgarsvæðisins sex daga vikunnar og hefur það markmið að aðstoða jaðarsetta hópa á höfuðborgarsvæðinu, td heimilislausa og fólk sem notar vímuefni. Einng er Frú Ragnheiður bíll á Akureyri sem er á ferðinni á mánudags- og fimmtudagskvöldum. Einstaklingar geta fengið heilbrigðisaðstoð í Frú Ragnheiði. Til að mynda aðhlynningu sára, umbúðaskipti, blóðþrýstingsmælingu, saumatöku og almenna heilsufarsráðgjöf. Einnig er boðið upp á nálaskiptaþjónustu, smokka og fræðslu um smitsjúkdóma.
Update your browser to view this website correctly. Update my browser now