Í tilefni af útskrift minni langar mig að styrkja Frú Ragnheiði frekar en að fá gjafir og hægt er að styrkja verkefnið hér. Takk kærlega fyrir, Elín. Frú Ragnheiður er skaðaminnkunarverkefni Rauða krossins í Reykjavík og hefur það markmið að ná til jaðarsetta hópa í samfélaginu eins og heimilislausra einstaklinga og fólks með fíknivanda. Frú Ragnheiður er sérinnréttaður bíll sem er ekið um götur höfuðborgarsvæðisins á kvöldin, sex kvöld í viku. Í Frú Ragnheiði er bæði veitt hjúkrunarmóttaka og nálaskiptaþjónusta.
Update your browser to view this website correctly. Update my browser now